Samansafn úr Portfólíóinu mínu
Skógrækt ríkisins
'09
Skógur.is hannaði ég hjá Hugsmiðjunni sumarið 2009. Fyrst hannaði ég vefinn með brúnum lit samfara þessum græna úr logo-inu þeirra en svo var ég beðin um að breyta honum í dalarauðann því það var litur úr kynningarefninu þeirra. Fyrst fannst mér þetta koma svolítið undarlega saman, næstum því jólalega, en í dag þegar ég skoða gömlu teikningarnar þá finnst mér vefurinn mikið fallegri og með meira lífi með þessum rauða lit.
Vefurinn var tilnefndur til íslensku vefverðlaunanna árið 2010 í flokkinum besti þjónustu- og upplýsingavefurinn.
www.skogur.is




