Daggardropi.is
'09
Daggardropann hannaði ég á árabilinu 2008 til 2009.
Þetta var útgáfa nr 2 af vef undir þessu saman nafni. Ég veit samt ekki hvað ég hef hannað margar útgáfur af honum, en eins og flestir hönnuðir vita þá er alltaf erfiðast að hanna útlit fyrir sjálfan sig. Maður virðist aldrei nógu ánægður með það sem maður gerir.
Þessi Daggardropi var settur upp í Wordpress og aðallega vefaður af Val mínum, ég átti samt eitthvað í kóðanum þar líka ef ég man rétt.
Vefurinn var tilnefndur til íslensku vefverðlaunanna árið 2009 í flokkinum besta blog/efnistök/myndefni.



