Hugsmiðjan í fréttum

8.2.2012

  • Orkusalan

Það hefur vonandi ekki farið framhjá neinum allar þessar góðu fréttir um Hugsmiðjuna seinustu daga, þar á meðal vegna þess að vefur frá okkur vann titilinn "Besti íslenski vefurinn". 

Já það er gaman að vinna hjá Hugsmiðjunni um þessar mundir. Í síðustu viku fóru fram íslensku vefverðlaunin sem haldin eru árlega af SVEF - samtökum vefiðnaðarins. Þar átti Hugsmiðjan tvo vefi sem voru tilnefndir, www.stjornur.is sem hann Maggi hannaði og www.orkusalan.is sem var sameiginlegt verkefni hjá okkur Magga. Það var eiginlega meira svona að Maggi lagði línurnar og ég dúllaði hann upp.

Þetta var í fyrsta skipti sem við vinnum einhvern vef svona saman og tókst það greinilega svona vel til. Við lánum jú hvort öðru stundum augun okkar en það er greinilegt að þegar tveir koma að þá verður hönnunin einfaldlega betri. Valur minn á síðan allan heiðurinn af því hvað vefurinn er hrikalega vel vefaður og öll virkni svona snazzy. Hann er soddan snillingur þessi kærasti minn.

Orkusöluvefurinn vann þrjú verðlaun á þessari uppskeruhátíð vefiðnaðarins: "Besti sölu- og kynningarvefurinn með færri en 50 starfsmenn", "Besta útlit og viðmót", og svo var hann valinn "Besti íslenski vefurinn". Þvílíkur heiður! :)

Þeir sem mættu á verðlaunaafhendinguna fannst nú samt örugglega skrítið að sjá að ég sat í dómnefndinni, en ég get nú sagt ykkur það að ég mátti ekkert tjá mig um nein verkefni sem komu frá Hugsmiðjunni, sama hvort ég kom að þeim eða hvað. Ég var þögul sem gröfin þegar talað var um þessa vefi. Fannst samt alveg snilld að hlusta á hvað fólkið í dómnefndinni hafði að segja um Orkusöluvefinn og vefurinn virðist hafa náð því markmiði sem hann átti að gera. Vera töff og nýtískulegur og vilja fá mann til að skipta um orkusölufyrirtæki. Algjör snilld!

En já fleira flott og gott frá Hugsmiðjunni: vefur Tryggingastofnunar ríkisins vann um daginn titilinn "Besti ríkisvefurinn". Hann var hannaður af Bjössa sem er nú bara því miður hættur hjá Hugsmiðjunni og hann var vefaður af honum Val mínum.

Og útaf allri þessari hamingju kom líka þessi flotta umfjöllun um Hugsmiðjuna á visir.is í gær.

Já það er gaman að vinna hjá eins góðu fyrirtæki og Hugsmiðjunni. Og hey, ef þú ert vefari eða forritari, þá er Hugsmiðjan að leita eftir slíkum núna!


Hafa samband

Ertu með spurnigu eða vilt bara segja hæ, endilega sendu mér póst.

Athugið: Nauðsynlegt er að fylla út þá reiti sem merktir eru með *.

Til að fyrirbyggja ruslpóst:

Ég annarstaðar


Leita á vefnum


Þetta vefsvæði byggir á Eplica