Jónuannáll 2011
Ég er búin að vera hugsa svolítið seinustu daga allt það sem gerðist á árinu og því sem ég kom í verk. Ég er bara helvíti ánægð með þetta ár svona í heild sinni. Ég ætla að rúlla yfir í þessari færslu það helsta.
Ég var nýlega byrjuð hjá kírópraktor í byrjun þessa árs og hjálpaði hann mér að komast í gegnum "bakflæðið" sem hafði verið að hrjá mig næstum eitt og hálft ár. Þetta var ekkert alvöru bakflæði eftir allt saman heldur bólga við 9. hryggjarlið sem var orðin svona slæm að hugsanlega hefur taug verið þar klemmd og framkallað þessi áhrif. Eftir nokkrar ferðir snemma á þessu ári var mér farið að líða miklu betur og þorði að byrja að drekka kaffi aftur. Yndislegur þessi kírópraktor, ég mæli með honum!
Indý greyjið þurfti að leita læknis í mars en þá var hún farin að gleypa matinn sinn í heilu lagi og var þetta útaf skemmdri tönn. Hún var því svæfð og dreginn úr henni endajaxl. Þegar maður fer með dýr í svæfingu hjá lækni þarf að taka af þeim matinn um 12 tímum áður en aðgerð hefst svo hún var orðin illa svöng um morguninn þegar hún átti að mæta. Eftir að hún kom síðan heim aftur, alveg rosalega dösuð eftir svæfinguna þá heimtaði hún mat og stóð vaggandi yfir disknum og reyndi að setja upp í sig en hitti ekki alltaf á diskinn. Það var mjög fyndið.
Í byrjun júní fórum við Valur til Bandaríkjana, nú á austurströndina í fyrsta skipti og tókum smá road trip. Við bara neyddust til að fara út þar sem vildarpunktarnir okkar voru að renna út þetta árið og það var eitthvað mega tilboð að fljúga til Boston. Við flugum því út 5. júní og skoðuðum aðeins þar, tókum svo bílaleigubíl og keyrðum útá Cape Cod og svo þaðan í gegnum Connecticut og yfir til New York þar sem við gistum í 4 nætur. Gistingin var reyndar í Jersey City, en það skiptir ekki öllu. Eyddum dögunum allavega á Manhattan í full blown túristaferðum þar sem við vorum með svona New York Passes. Síðan var ekið til Washington og stoppað þar í 3 nætur og skoðað allt þetta helsta: Hvíta húsið, þinghúsið, Pentagon, FBI headquarters, kirkjugarðinn og fleira. Við keyrðum reyndar líka yfir í Maryland þar sem Six flags skemmtigarðurinn er og skelltum okkur í nokkra rússíbana. Síðan var tekin önnu leið til baka og sáum við meðal annars leifar eftir hvirfilbil í Springfield. Hér fyrir neðan má sjá kortið af akstursleiðinni okkar.
Í júlí skelltum við okkur í útilegu stemmarann og keyrðum austur á land með fyrsta stopp í Skaftafelli. Þar settum við upp tjaldið okkar og hittum síðan foreldra Vals á sama tjaldstæði fyrir tilviljun. Síðan daginn eftir var ekið til Fáskrúðsfjarðar til þess að taka þátt í Frönsku dögunum og hitta afa. Á Fáskrúðsfirði var allt troðið af fólki svo við fengum bara að tjalda í garðinum hjá Högna frænda og Ingeborgu. Það var bara ansi fínt, allavega mun betra en að vera á tjaldstæði. Þar gistum við í tvær nætur og síðan héldum við af stað aðeins lengra austur. En fórum reyndar ekki mjög langt heldur bara inní Atlavík og gistum við Lagarfljótið. Það kvöld reyndar kom smá súld og þá var svona nánast útilegu stemmarinn dauður. Við kíktum samt uppá Kárahnjúka, bræddum soldið dekkinn í brekkunni á leiðinni niður og enduðum síðan á Vík í Mýrdal og tjölduðum þar. Daginn eftir það skelltum við okkur síðan uppað Skógarfossi og löbbuðum uppá Fimmvörðuhálsinn. Svo var bara brunað beint í bæinn til þess að mæta í vinnu daginn eftir.
Í ágúst tók ég síðan eina stóra og djarfa ákvörðun sem ég var búin að hugsa um í þónokkurn tíma og ákvað að nú skildi ég láta verða að því. En það var að taka þátt í body fitness á næsta ári. Ég fékk mér því þjálfara og byrjaði að æfa á fullu í september. Þetta er auðvitað langtíma prógramm svo ég er bara rétt að byrja.
Í lok nóvember skellti ég mér svo aftur til New York en í þetta skiptið með Fríðu systu og Carlos, manninum hennar. Við stoppuðum bara í 3 nætur en þetta var aðallega gert til þess að upplifa Black Friday í NYC og auðvitað að versla jólagjafir og föt. Þetta var alveg ótrúlega skemmtilegt að sjá NY í öðru ljósi en því sem ég sá í sumar, enda þá var alveg steikjandi hiti og bara erfitt að anda. En svona að hausti til er þetta frábær borg. Ótrúlega mikið lagt uppúr jólaskreytingum þarna svo þetta var einstaklega skemmtileg upplifun. Þúsund þakkir til systur minnar fyrir að leyfa mér að koma með :)
Og já, held þetta sé allt það markverða sem gerðist árið 2011. Desember er bara búinn að vera rólegur. Ekkert bakað fyrir jólin þetta árið (þjálfarinn sagði bara nei, þú færð þér bara mandarínur) svo maður er búinn að vera bara soldið latur því maður gerir lítið annað en að vinna og vera á æfingu. En allt í allt, er þetta bara búið að vera brilliant ár og ég vona það næsta verði bara svipað! Gleðilegt ár!

